Nú ættu aðdáendur Sound of Music eða Söngvaseiðs að gleðjast því glænýtt safn var opnað nýverið í Austurríki. Barnabarn hins raunverulega Georgs von Trapp, sjóliðsforingjans sem sagan byggist á, er einn leiðsögumanna á safninu.„Ég er mjög hreykin af því. Föður mínum eru gerð skilmeð hlutverki Kurt. Hann hét Werner von Trapp.Svo að því sé haldið til haga,“ segir Elisabeth von Trapp.Saga fjölskyldu hennar varð innblástur söngleiksins Söngvaseiðs sem kom svo út sem kvikmyndin goðsagnakennda með Julie Andrews í aðalhlutverki 1965.Safnið er í borginni Salzburg. Það var opnað í september og verður opið til 1. nóvember.Það verður svo opið frá mars fram í nóvember ár hvert. Safnið er það eina í heiminum sem segir bæði sögu kvikmyndarinnar og hinnar raunverulegu og söngelsku von Trapp-fjölskyldu.„A