Kona handtekin grunuð um njósnir fyrir Kína

Bandaríska alríkislögreglan handtók konu á flugvelli í Los Angeles sem grunuð er um að hafa njósnað um son Lai Ching-te Taívanforseta og fjölskyldu hans fyrir kínversk stjórnvöld.Kash Patel er forstjóri Alríkislögreglunnar.AP / Alex BrandonWanying Zhang er sökuð um að hafa starfað sem útsendari Kína í Bandaríkjunum. Hún hafi í fyrra ferðast til Seattle og fylgst þar með ferðum fjölskyldunnar og sent kínverskum yfirvöldum myndir, myndskeið og upplýsingar um bílnúmer.Lai er mjög ákveðinn í að tryggja fullveldi Taívan. Kash Patel, forstjóri FBI, fagnaði handtökunni og sendi þau skilaboð að Bandaríkin væru ekki öruggur staður til að stunda njósnastarfsemi. Zhang á að koma fyrir alríkisdómstól í dag.
Kona handtekin grunuð um njósnir fyrir Kína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd