Staðfest að rústir nærri Narsarsuaq voru stór miðaldakirkja

Rannsókn hóps fornleifafræðinga og annarra sérfræðinga hefur leitt í ljós að rústir nærri Narsarsuaq á Suður-Grænlandi eru stór miðaldakirkja. Þar fannst einnig beinagrind norræns manns.Rannsóknarstjórinn Christian Edelfelt Koch Madsen segir að þetta séu stórtíðindi sem kalli á endurmat á mikilvægi svæðisins fyrir Norðurlöndin öll. KNR fjallar um málið.Lengi hefur verið grunað að rústirnar gætu verið kirkja frá tímum norrænna manna en óyggjandi sannanir skorti. Beinagrindin sem fannst sneri með höfuðið í austur sem er einkennandi fyrir kristna greftrunarsiði.Inúítar hafi verið grafnir undir steinhleðslum en kristnir menn í kirkjugörðum. Madsen segir því engum vafa undirorpið að rústirnar séu kirkja sem getið er í rituðum heimildum. Þar er heita kirkna og staðsetninga getið. Þjóðminjasafn D
Staðfest að rústir nærri Narsarsuaq voru stór miðaldakirkja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd