Rubio ræðir öryggis- og efnahagsmál á fundum með hérlendum ráðamönnum í dag

Bandaríski utanríkisráðherrann Marco Rubio er væntanlegur hingað til lands í dag til að ræða við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála. Frá þessu er greint í tilkynningu bandaríska utanríkisráðuneytisins.Þetta er fyrsta heimsókn utanríkisráðherra Bandaríkjanna síðan Antony Blinken kom til Íslands árið 2021. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tilkynnti um heimsókn Rubios 1. október og sagði þá að samstarf í varnarmálum vegi þyngst í samskiptum ríkjanna ásamt öryggi á norðurslóðum og viðskiptum.Í umfjöllun AFP-fréttaveitunnar er sagt að með heimsókninni vilji Rubio gæta hagsmuna Bandaríkjanna á norðurslóðum. Með aukinni samkeppni um yfirráð norðurslóða hafi Ísland endurheimt mikilvægi sitt í öryggismálum þótt landið reiði sig áfram verulega á Bandaríkin í þeim e
Rubio ræðir öryggis- og efnahagsmál á fundum með hérlendum ráðamönnum í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd