Yfirkjörstjórn í Brasilíu hefur staðfest að efnt verður til síðari umferðar forsetakosninga sunnudaginn 25. október. Hægrimaðurinn Flávio Bolsonaro, frambjóðandi Frjálslynda flokksins, hlaut rúm 47 prósent atkvæða gegn rúmum 45 prósentum sitjandi forseta, Luiz Inácio Lula da Silva. Hann er leiðtogi Verkamannaflokksins. Aðrir frambjóðendur fengu langt undir tíu af hundraði. Um tíma meðan á talningu stóð hafði Bolsonaro náð rúmum helmingi atkvæða, sem þarf til að komast hjá síðari umferð. Hægri öflin í Brasilíu unnu stórsigra í þingkosningum sem haldnar voru samhliða forsetakosningunum. Það er mikið áfall fyrir vinstrimanninn Lula, sem vill tryggja sér fjórða kjörtímabilið á forsetastóli til að festa arfleifð sína í sessi. Auk þess voru nokkrir öldungadeildarþingmenn kjörnir og fylkisstjórar