„Langvarandi martröð“ barna í Líbanon

„Langvarandi martröð“ er heiti nýrrar skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um stöðu barna í Líbanon. Samkvæmt henni hefur Ísraelsher drepið eða sært að meðaltali sjö börn á hverjum degi frá því í byrjun mars.Skýrslan var birt fyrir nokkrum dögum. Þar kemur fram að frá því í byrjun mars hafi minnst 261 barn verið drepið í Líbanon og meira en eitt þúsund særð. Það jafngildir að meðaltali sjö börnum á hverjum degi í þá sex mánuði sem skýrslan tekur til.Átökin hafa aukið enn á langvarandi efnahagskreppu og ýtt æ fleirum út í fátækt. Fjórar af hverjum fimm fjölskyldum eiga í erfiðleikum með að framfleyta sér.Yfir 20 prósent þeirra fjölskyldna sem UNICEF ræddi við sögðu að börn á heimilinu hefðu farið svöng að sofa og meira en 30 prósent sögðust ekki hafa efni á nauðsynlegri heilbrigðisþjónus
„Langvarandi martröð“ barna í Líbanon

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd