Skorað á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ að segja af sér

Nokkur fjöldi fólks hefur þegar undirritað áskorun til Önnu Hildar Guðmundsdóttur formanns og framkvæmdastjórnar SÁÁ um að segja af sér. Undirskriftalista þess efnis er að finna á Ísland.is sem er virkur til 1. desember næstkomandi. Þar segir að óviðunandi staða hafi skapast við brotthvarf lykilstjórnenda, alvarlegan mönnunarvanda og skerðingu á innlögnum á Vog, sem beri vott um djúpan trúnaðarbrest og kalli á afdráttarlausar breytingar. Formaður og framkvæmdastjórn beri ábyrgð á því og afsögn sé forsenda þess að unnt verði að endurheimta traust og þær vinnuaðstæður sem starfsfólk treysti sér í til að tryggja heilbrigðisþjónustu til framtíðar.Meirihluti starfsfólks vantreysti formanni og framkvæmdastjórn auk þess sem aðalstjórn hafi fellt tillögu um stuðning við framkvæmdastjórnina. Mikill
Skorað á formann og framkvæmdastjórn SÁÁ að segja af sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd