Minnst tveir myrtir í skotárás á götuhátíð

Að minnsta kosti tveir voru myrtir og tugir særðust í skotárás á fjölmennri götuhátíð í borginni Vienna í bandaríska ríkinu Georgíu. Lögregluborði í ótilgreindri bandarískri borg. Mynd úr safni.Pixabay / CC0Fréttamiðlar í borginni segja árásina hafa verið gerða snemma sunnudagsmorguns að staðartíma. Hin látnu eru báðir karlmenn um tvítugt. Lögregluyfirvöld segja hina særðu hafa verið flutta á nokkur sjúkrahús í borginni. Ekki er vitað hvort nokkur hafi verið handtekinn en ítarleg lögreglurannsókn stendur yfir.
Minnst tveir myrtir í skotárás á götuhátíð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd