Athafnamaður handtekinn í Leifsstöð vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli

Lögregla handtók á níunda tímanum í kvöld íslenskan athafnamann á sextugsaldri í Leifsstöð við komuna frá Lissabon í Portúgal. Hann er grunaður um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál sem ráðist var í aðgerðir vegna 22. september síðastliðinn. Þetta herma heimildir fréttastofu. Flugvélin lenti á Keflavíkurflugvelli klukkan 20:25.Upplýsingar fréttastofu herma jafnframt að til hafi staðið að handtaka manninn í aðgerðunum 22. september en þá hafi lögregla gripið í tómt. Í ljós hafi komið að maðurinn var staddur í Portúgal, þar sem hann dvelur gjarnan.Maðurinn er eigandi eins fyrirtækjanna sem rannsóknin beinist meðal annars að. Hann hefur staðið í margvíslegum rekstri undanfarna áratugi bæði hér heima og erlendis, meðal annars veitingarekstri og rekstri fasteignafélaga og verktaka
Athafnamaður handtekinn í Leifsstöð vegna rannsóknar á fíkniefna- og peningaþvættismáli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd