Ágreiningur talinn liggja að baki morðinu í Halden

Lögregla í Noregi telur nú að ágreiningur hafi legið að baki skotárásinni í Halden í morgun, þar sem feðgar voru skotnir til bana og þriðji maðurinn særðist alvarlega. Lögregla segir upplýsingar úr yfirheyrslum styðja þá tilgátu.Karlmaður á þrítugsaldri, sem er grunaður um verknaðinn, hafði áður verið hluti af sama veiðihópi og mennirnir sem skotið var á. Hann var þó ekki hluti af hópnum þegar skotárásin varð. JÁTAÐI AÐ HAFA ORÐIÐ FEÐGUNUM AÐ BANA EN JÁTAÐI EKKI TILRAUN TIL MANNDRÁPS Samkvæmt frétt VG hefur maðurinn játað að hafa orðið feðgunum að bana í skriflegri yfirlýsingu. Ole Richard Holm-Olsen, lögmaður hins grunaða, segir hann hafa játað að hafa valdið skaða, en að hann játi ekki tilraunir til manndráps.Faðir hins grunaða ræddi við VG og sagði árásina hafa komið sér algjörlega í
Ágreiningur talinn liggja að baki morðinu í Halden

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd