Loftvarnarflautur ómuðu í heimsókn Merz til Kyiv – Eykur fjárframlög til Úkraínu

Loftvarnarflautur tóku á móti þýska kanslaranum Friedrich Merz í óvæntri heimsókn hans til Kyiv í Úkraínu í dag. Þýskaland og Úkraína hafa undirritað samning um aukin fjárframlög til baráttu Úkraínumanna gegn innrásarstríði Rússa.Merz heimsótti borgina óvænt í dag til að sýna fram á áframhaldandi samstöðu og stuðning Evrópu við Úkraínu.Úkraína og Þýskaland undirrituðu samning um 1,3 milljarða evra styrk, sem jafngildir um 200 milljörðum króna, til að bregðast við auknum loftárásum Rússa.Um 1 milljarður evra rennur til vopnakaupa, þar á meðal árásardróna, en 350 milljónir evra renna til laskaðs orkukerfis Úkraínu. Rússar beina árásum sínum að því til að skera á hita- og rafmagnsframboð þegar brátt fer að vetra. SEGIR TILGANGSLEYSI STRÍÐSINS BERSÝNILEGT Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu
Loftvarnarflautur ómuðu í heimsókn Merz til Kyiv – Eykur fjárframlög til Úkraínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd