Kostnaður við íþróttaiðkun barna getur hlaupið á hundruðum þúsunda á ári, samkvæmt nýrri úttekt ASÍ.Tugþúsunda munur getur verið á æfingagjöldum félaga fyrir jafngömul börn og kostnaður eykst oft með aldri og auknum kröfum.Þegar fleira en eitt barn er á heimilinu og börnin stunda fleiri en eina íþrótt getur samanlagður kostnaður orðið mikill.Flest sveitarfélög landsins bjóða frístundastyrki, misháa, sem ganga upp í æfingagjöld. Frístundastyrkurinn er greiddur árlega.Prófessor í félagsfræði segir íþróttir barna orðnar að iðnaði sem hafi neikvæðar afleiðingar bæði fyrir börn og foreldra.Heimili á lágmarkslaunum eru í þröngri stöðu þegar kemur að því að greiða uppsett æfingagjöld í skipulögðu íþróttastarfi. Félagslegur þrýstingur á aukaæfingar og krafa um árangur hefur aukist. ÆFINGAGJÖLDIN