Einn af hverjum þremur karlmönnum á aldrinum 18–24 ára er ósammála því að karlar og konur eigi að njóta jafnréttis. Þetta kemur fram í skýrslu um stöðu karlmennsku á Norðurlöndunum.Skýrslan var unnin af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo – miðstöð karlmennsku og félagslegs réttlætis, að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar. Þar eru ýmsar hliðar karlmennskunnar rannsakaðar. Vísir greindi fyrst frá niðurstöðum skýrslunnar.Samkvæmt henni telja um 55% ungra manna að karlmenn eigi að vera fyrirvinnur heimilisins. 42% telja að karlar eigi að eiga lokaorðið í nánum samböndum. 51% telur karlmenn vera betri stjórnendur í fyrirtækjum en konur. Hverjir voru spurðir? Rannsóknin byggir á niðurstöðum netkönnunar sem var unnin af könnunarfyrirtækinu RepData og byggir á sjálfsmati þátttakenda.Alls tóku 4574