Meirihluti D-listans og S-listans í Suðurnesjabæ er fallinn. Þetta staðfestir Haraldur Helgason bæjarfulltrúi D-listans. Haraldur sagði ótímabært að tjá sig frekar um málið að svo stöddu.Mbl greindi fyrst frá.Alexandra Jóhannesdóttir bæjarstjóri vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu, en hún var ráðin til starfa í júlí á þessu ári.