„Vatnið í lóninu hefur töfralit sem er hluti af þeirri sterku upplifun sem við viljum að þessi staður hafi,“ segir Sigurbjörn Reynir Björgvinsson. Hann ber þann titil að vera yfirmaður gestrisni og þjálfunar, en í því felst meðal annars að skapa þann staðaranda og andrúm sem á staðnum skal vera.