Hjónin Ingi Torfi Sverrisson og Linda Rakel Jónsdóttir hafa sett á fót smáforritið Lifetrack, sem gerir notendum kleift að fylgjast með næringu sinni með lágmarks fyrirhöfn. Þau hjón hafa í mörg ár tileinkað sér mataræði sem byggir á réttu hlutfalli næringar og hafa síðastliðin ár aðstoðað aðra við að bæta sinn lífsstíl. Ingi segir að þau hafi fundið ákall um...