Ken Urker, barnsfaðir og sambýlismaður Gypsy Rose Blanchard, fannst látinn 1. október, á 34 ára afmælisdaginn sinn. Hann lætur eftir sig tveggja ára dóttur með Blanchard. Bróðir og mágkona Blanchard komu að Urker látnum á heimili hans.Lögreglan telur hann hafa látist af völdum of stórs fíkniefnaskammts en málið er enn til rannsóknar. Á heimilinu fundust sprautunál, skeið og brúnt efni. Að sögn lögreglu hafa ekki fundist ummerki um að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað.Blanchard birti færslu á Instagram eftir andlát Urker og sagðist ekki vita hvort hann hafi ætlað sér að láta lífið eða ekki. Hann hafi ekki verið á góðum stað. Það hafi tekið sinn toll að vera undir smásjá samfélagsmiðla og fjölmiðla. KYNNTIST URKER Á MEÐAN HÚN AFPLÁNAÐI DÓM Blanchard kynntist Urker á meðan hún afplánaði f