„Ég nota þetta mikið sjálf til að ná mínum núllpunkti í hversdeginum. Þetta er endurtekin hreyfing. Eitthvað sem maður þarf virkilega að einbeita sér að,“ segir Anna Karen Sigurðardóttir, eigandi prjónaverslunarinnar Maro.Ekki miklar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum prjónamennsku á fólk. Þær niðurstöður sem þó liggja fyrir benda hins vegar til þess að handavinna sé róandi og geti jafnvel hjálpað fólki sem á við fíknihegðun að stríða.Þetta kemur fram í umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Þar segir að endurteknar handahreyfingar, líkt og við hannyrðir, geti róað parasympatíska taugakerfið, svokallað sefkerfi. HJÁLPAR FÓLKI Í GEGNUM ERFIÐAR LÍFSREYNSLUR Anna Karen segir marga viðskiptavini sína lýsa því að prjónaskapur hjálpi þeim við að takast á við erfiðar lífsreynslur, til dæmis kra