Skotárás í Halden – Tveir látnir

Þrír voru skotnir í bænum Halden í Noregi snemma í morgun. Tveir létust eftir árásina og sá þriðji er alvarlega særður. Sá var fluttur á sjúkrahúsið í Ullevål með sjúkraflugi.Allir þrír voru hluti af veiðihópi. Árásarmaðurinn er ekki talinn hafa verið hluti af hópnum.Greint er frá árásinni á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar segir að lögregla hafi greint frá árásinni skömmu fyrir átta í morgun að norskum tíma, eða skömmu fyrir sex í morgun að íslenskum tíma. Rannsókn málsins er á frumstigi.Talsverður viðbúnaður er á vettvangi árásarinnar. Haft er eftir lögreglu að einn sé í haldi grunaður um árásina. Ekki er talin hætta á ferð og lögregla leitar hvorki fleiri gerenda né þolenda.Sveitarfélagið hefur sent aðgerðastjórn á staðinn sem fundaði klukkan níu að staðartíma, segir Fredrik Holm, b
Skotárás í Halden – Tveir látnir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd