Tveir voru skotnir til bana í norska bænum Halden í morgun og einn liggur alvarlega særður á sjúkrahúsi. Hinir látnu eru feðgar og voru saman á veiðum ásamt hinum særða.Um hálf átta í morgun að norskum tíma fékk lögregla tilkynningu um skotárás í bænum Halden, um 120 kílómetra sunnan við Ósló. Búið var að handsama árásarmanninn áður en lögregla kom á staðinn. Wilhelm Bjølseth lögreglustjóri ræddi við fjölmiðla á vettvangi í morgun.Bjølseth sagði fjölda fólks hafa orðið vitni að skotárásinni og verið væri að vinna að því að ræða við alla og afla upplýsinga til að varpa ljósi á það hvað gerðist.Á blaðamannafundi lögreglu síðar um morguninn kom fram að tveir væru látnir og einn alvarlega særður. Hinir látnu eru feðgar á fimmtugs- og áttræðisaldri að því er norska ríkisútvarpið NRK greinir frá