Tveir létust í slysinu við Háreksstaðakvísl

Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl. Frá þessu segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi.Tveir voru fluttir alvarlega slasaðir með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Þeir voru einnig erlendir ferðamenn.Aðrir sem lentu í slysinu voru færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum, en voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli þeirra voru talin minniháttar.Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Austurlandi og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.
Tveir létust í slysinu við Háreksstaðakvísl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd