Eldri kona slær til starfsmanns inni í húsi. Starfsmaðurinn bregst ekki við og tekur ekki fram fyrir hendurnar á henni þegar hún tekur í húninn, opnar dyrnar og gengur út úr húsinu. Hún strunsar áfram, í hvarf. Tveimur mínútum síðar birtist hún aftur. Hún raular. Á andliti hennar er blítt bros. Hún virðist hafa gengið af sér reiðina.Þessi kona býr í heilabilunarþorpinu Hogeweyk í Hollandi, skammt frá Amsterdam. Hún er ein af þeim 188 sem þar búa og eiga það öll sameiginlegt að vera með langt gengna heilabilun.Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk hefur reglulega lagt leið sína í þorpið á síðustu árum. Í samtölum við Kveik nefndi það þetta úrræði ítrekað sem fyrirmynd að þjónustu við heilabilaða sem þurfa sólarhringsþjónustu. Ráðgjafi hjá þorpinu segir að Íslendingarnir nefni helst að regluverk gæ