Þrír særðir í skotárás í Halden

Þrír voru skotnir í skotárás í bænum Halden í Noregi snemma í morgun. Greint er frá árásinni á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar segir að lögregla hafi greint frá árásinni skömmu fyrir átta í morgun að norskum tíma, eða skömmu fyrir sex í morgun að íslenskum tíma.Talsverður viðbúnaður er á vettvangi árásarinnar. Haft er eftir lögreglu að einn sé í haldi grunaður um árásina. Ekki er talin hætta á ferð og lögregla leitar hvorki fleiri gerenda né þolenda.Sveitarfélagið hefur sent aðgerðastjórn á staðinn sem fundaði klukkan níu að staðartíma, segir Fredrik Holm, bæjarstjóri Halden.„Við vinnum að því að fá yfirsýn yfir hvað gerðist og vinnum með lögreglu að því. Við búum okkur undir að hjálpa ættingjum eftir þörfum,“ hefur NRK eftir Holm.
Þrír særðir í skotárás í Halden

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd