Íslendingar í dönskum þrælakistum

Á 18. og 19. öld voru margir Íslendingar dæmdir annaðhvort heima í héraði eða á Alþingi til þess að taka út refsingu sína í þrælakistum og betrunarhúsum Kaupmannahafnar. Sum árin voru svo margir fluttir út að heilu blaðsíðurnar fylltust af íslenskum nöfnum í fangaskránum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta þætti Betrunar, þáttaraðar um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð á Rás 1.Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað afdrif íslenskra sakamanna 1736–1830. Hún fann upplýsingar um 166 Íslendinga í fangaskrám fangelsanna sem voru starfandi í Kaupmannahöfn á þessum tíma. Flestir þeirra voru sendir í Stokkhúsið sem var eitt alræmdasta fangelsi Evrópu á þessum tíma.Langflestir sakamannanna voru sendir út um miðja 18. öld þegar mikil harðindi ríktu á Íslandi.
Íslendingar í dönskum þrælakistum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd