Hvassir vindstrengir á Suðausturlandi

Búast má við hvössum suðvestan- og vestanvindstrengjum suðaustanlands fram yfir hádegi, einkum í Mýrdal og Öræfum. Veðurstofa Íslands hvetur ökumenn á svæðinu til að aka varlega, sérstaklega ef ökutæki eru viðkvæm fyrir vindum.Annars er von á vætu víða á landinu í dag, en yfirleitt þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Vestan- og norðvestanátt upp á 8-13 metra á sekúndu. Hiti á bilinu 6-13 stig og hlýjast á austanverðu landinu.Síðdegis dregur úr vindi og úrkomu. Veðurstofan spáir norðanátt upp á 3-10 metra í kvöld með súld á norðanverðu landinu, annars þurrt að mestu.Á morgun spáir Veðurstofan norðanátt upp á 3-8 metra á sekúndu og bjartviðri um landið vestanvert, norðvestanátt upp á 5-13 metra á sekúndu norðaustantil og rigningu, slyddu eða snjókomu með köflum. Á Suðausturlandi er von á
Hvassir vindstrengir á Suðausturlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd