Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana

Bandaríkjamenn þurfa að fallast á alla vopnahlésskilmála Íransstjórnar sem fram koma í samningsdrögunum sem gerð voru í Pakistan áður en opnað verður fyrir óheftar siglingar um Hormússund. Íranska ríkisfréttastöðin Nour hefur þetta eftir þingforsetanum Mohammad Baqer Qalibaf, sem einnig hefur verið aðalsamningamaður Íransstjórnar. Kröfurnar eru í sjö liðum, og þær helstu eru afnám hafnbanns Bandaríkjanna, brottflutningur herliðs þeirra, aflétting viðskiptaþvingana, stríðsskaðabætur og viðurkenning Bandaríkjanna á yfirráðum Írana yfir Hormússundi. Ekkert verði gefið eftir. Qualibaf segir samningamenn Bandaríkjanna nýlega hafa lagt fram tillögur að skilmálum fyrir vopnahléi gegnum sáttamiðlara en þeir verði að skilja að tími sífelldra málalenginga og einhliða krafna sé liðinn.
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd