Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja sig. Ofurölvi maður gekk í veg fyrir bíla og hafði í hótunum við gangandi vegfaranda í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt.Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir dyraverðir voru handteknir í miðborginni fyrir að veitast að manni með höggum og spörkum en var sleppt eftir skýrslutöku.Að öðru leyti virðast verkefni næturinnar hafa snúið að fólki sem í ölvunar- eða þreytuástandi þurfti á liðsinni lögreglu að halda. Þar á meðal var maður sem dauðþreyttur hafði lagt sig fram á stýri bíls síns.Lögreglan var með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi í gærkvöld. Frét