Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn

Friedrich Merz Þýskalandskanslari er kominn til Kyiv að eigin sögn til að árétta áframhaldandi stuðning við úkraínsk stjórnvöld í innrásarstríði Rússa. „Í dag ætla ég að segja Zelensky að hann geti áfram reitt sig á liðsinni okkar,“ segir í yfirlýsingu Merz, sem birtist eftir að hann kom til Kyiv ásamt Katherina Reiche efnahagsráðherra. Ekki var tilkynnt fyrirfram um að kanslarinn væri væntanlegur til Úkraínu. „Verði Rússar ekki stöðvaðir snúa þeir stríðsvél sinni fyrr eða síðar að okkur,“ segir í yfirlýsingunni þar sem aukin samvinna fyrirtækja beggja landa var einnig boðuð. Merz hélt til Úkraínu aðeins degi eftir að Rússar hvöttu sendimenn erlendra ríkja og aðra útlendinga til að yfirgefa Kyiv þar sem umfangsmiklar loftárásir væru yfirvofandi. Í yfirlýsingu rússneska utanríkisráðuneytisi
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd