Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum

Vísindamenn hafa fundið nýja eðlutegund í næstum fimm kílómetra hæð í Andesfjöllum í Perú. Stjórnendur Náttúrusögusafns Háskóla heilags Markúsar í höfuðborginni Líma greindu frá uppgötvuninni í svissneska vísindaritinu Diversity.Hann er elsti háskóli í Ameríku. Eðlan hlaut fræðiheitið Liolaemus archipensis, er sex til átta sentímetrar að lengd og kynin hafa ólíkt litamynstur. Kvendýrin eru með ferhyrnda bletti á bakinu en karldýrin skáhalla bletti og hvítar hreisturflögur.Það segja vísindamenn að hjálpi eðlunum að falla inn í grýtt umhverfið í fjöllunum. Eðlan nærist á plöntum og smáum liðdýrum á borð við köngulær, bjöllur og skordýralirfur.Líffræðingurinn Ling Huamani-Valderrama, sem stýrði rannsókninni, segir í samtali við AFP uppgötvun og lýsingu nýrra tegunda marka mikilvægt framfarask
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd