Bandaríska utanríkisráðuneytið vísaði tveimur írönskum erindrekum úr landi, „sparkaði þeim brott“ eins og það er orðað. Þeir höfðu áður hunsað fyrirskipun yfirvalda um að yfirgefa Bandaríkin.Mennirnir voru hluti sendinefndar Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og sátu allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna seinni hluta septembermánaðar.Sendinefndinni var gert að yfirgefa New York á mánudag, samkvæmt fréttum bandarískra fjölmiðla, en tvímenningarnir dvöldu þar áfram, annar fram á föstudag og hinn yfirgaf Bandaríkin á laugardag.Embættismaður innan utanríkisráðuneytisins greindi AFP-fréttaveitunni frá brottrekstri mannanna og sagði viðbrögðin sýna að Marco Rubio ráðherra væri full alvara gagnvart Írönum. Þeim yrðu ekki sýnd nein vettlingatök.Bandarískir og íranskir ráðamenn höfðu rætt saman í N