Engan sakaði þegar olíuflutningaskip og tvö flutningaskip rákust saman í Valderhaugfirði skammt frá Álasundi í Noregi í nótt. Tvö skipanna eru komin til hafnar þar sem skemmdir verða metnar og það þriðja liggur við akkeri úti á firðinum.Skipin eru skráð í Færeyjum, Hollandi og Noregi. Stærsta skipið er hundrað 147 metra langt. Neyðarkall barst klukkan 1:37 að staðartíma og samkvæmt frétt NRK kom leki að einu skipinu.Því var talsverður viðbúnaður á slysstað þótt ekki væri talin hætta á að skipið sykki. Fjölmennt björgunarlið var kallað til.Freigátan Friðþjófur Nansen tók um tíma þátt í aðgerðum en hefur horfið á braut og björgunarþyrla var afturkölluð þegar ljóst varð að ekki þurfti að flytja skipverja á brott. Enn er ekki vitað hvað olli árekstrinum en lögreglurannsókn er hafin.