Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar yfir helmingur atkvæða hefur verið talinn hlaut flokkurinn 35,8 prósent atkvæða sem er miklu hærra hlutfall en skoðanakannanir bentu til.Kulbergs, sem tók við forsætisráðherraembættinu í maí, kvaðst fagna þessum árangri og vonast til að gegna því áfram. Útlit er þó fyrir að Kulbergs þurfi að mynda stjórn með öðrum flokkum þar sem samstarfsflokkarnir hafa tapað nokkru fylgi.Fjögurra flokka ríkisstjórn Kulbergs tók við völdum í lok maí eftir að stjórn Eviku Silina hraktist frá völdum vegna deilna um drónavarnir. Stjórnarflokkarnir sem eru fylgjandi samstarfi við Evrópusambandið og NATO hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að efla varnir landsins.