Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotlikoff sagði þetta í átta mínútna löngu ávarpi til stúdenta og starfsfólks í gær.Hann segir atvikið skelfilegt og heitir auknu gegnsæi. „Það nístir hjartarætur að hugsa um hvað stúlkan mátti þola,“ sagði Kotlikoff. Málið kveiki erfiðar spurningar um kynferðislega misnotkun, skort á virðingu fyrir mannlegri reisn og skuggahliðar skemmtanahalds, áfengis- og fíkniefnaneyslu.Málið hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að konan höfðaði mál vegna þess að gerendurnir voru ekki saksóttir á sínum tíma. Ríkisstjóri New York hefur skipað Letitiu James sem sérstakan saksóknara til að rannsaka ásakanir konunnar, sem segir sjö nemendur hafa byrlað sér