Jarðskjálftamælir.RÚV / Birgir Þór HarðarsonJarðskjálfti sem fyrstu tölur benda til að hafi verið af stærðinni 3,8 reið yfir austur af Brennisteinsfjöllum klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nótt. Að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, fylgdu fáeinir eftirskjálftar í kjölfarið. Hann segir skjálftann hafa fundist í byggð, vel fannst fyrir honum hér í Efstaleiti og víðar á höfuðborgarsvæðinu.