Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fylkisstjóra.Alls gefa þrettán kost á sér í forsetaembættið og skoðanakannanir sýna að mjög mjótt er á mununum með sitjandi forseta Luiz Inacio Lula da Silva og öldungardeildarþingmanninnum Flavio Bolsonaro.Hann er sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta sem situr í fangelsi fyrir uppreisnartilraun eftir nauman ósigur fyrir Lula í kosningunum 2022. Hvorugur þeirra þykir líklegur til sigurs í fyrri umferðinni og því er fastlega búist við að síðari umferð forsetakosninga verði haldin 25. október.Alls eru tæpar 159 milljónir á kjörskrá, 16 ára og eldri. Fólki á aldrinum 18 ára til sjötugs er skylt að mæta á kjörstað að undanskildum hermönnum sem