Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa orðið í Kötluöskju í Mýrdalsjökli í kvöld. Einn 3 að stærð varð klukkan 21:44. Bjarki Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir minni skjálfta hafa fylgt í kjölfarið. Jarðhiti hafi einnig lekið í Múlakvísl síðan í gær. Það hefur gerst nokkrum sinnum í sumar. Engin merki eru um hlaup í Múlakvísl. Bjarki segir að vel sé fylgst með þróuninni en eins og er séu engin merki um gosóróa. Engin merki eru um gosóróa í Kötlu. Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa mælst í kvöld.RÚV / Einar Rafnsson