Ísraelsher segist hafa gert loftárás á Gaza í dag gegn leiðtoga Hamas, Ali al-Amoudi. Yfirvöld á Gaza segja fimm hafa verið drepna í árásinni. Ísraelsher segir al-Amoudi hafa verið hægri hönd Yahya Sinwar, leiðtoga Hamas, sem var drepinn af Ísraelsher í október 2024. Herinn segir al-Amoudi einnig hafa komið að skipulagningu hryðjuverkaárásar Hamas á Ísrael 7. október 2023. Í yfirlýsingu hersins segir að árás hafi verið gerð á íbúð sem hann hafi verið í og Hamas noti til hryðjuverkastarfsemi. Hún hafi verið gerð til að fjarlægja þá ógn sem að honum steðji. Í tilkynningunni kom ekki fram hvort hann hafi fallið í árásinni. Íbúar á Gaza skoða vettvang loftárásar sem Ísraelsmenn gerðu snemma að morgni 3. október. Ekki eru upplýsingar um hvort þetta hafi verið árásin sem gerð var gegn al-Amoudi.