ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili

Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti frumvarps ráðherra var unninn í samráði við ASÍ. Átta af hverjum tíu sem fengu slík leyfi í fyrra komu frá Filippseyjum.Ungmenni frá Filippseyjum, mest konur, hafa komið í stórum stíl til Íslands síðustu ár á svokölluðu Au-pair leyfi, í vistráðningu. Frá 2017 til 2024 voru 766 dvalarleyfi gefin út og 78% þeirra voru til Filippseyinga. Á síðasta ári fóru 80 prósent allra leyfa til fólks utan EES til Filippseyinga.Nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga verður útgáfu leyfa til fólks utan EES, vegna vistráðningar, hætt. Þau sem þegar hafa dvalarleyfi halda því þó út leyfistímann. Þá verður enn hægt að koma á au-pair sambandi innan Evrópu.Nýlega
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd