Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar

Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fjögurra bíla árekstur. Átta voru í bílunum. Veginum var lokað fram á kvöld en hann hefur verið opnaður á ný.Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar voru allir í bílunum erlendir ríkisborgarar, sumir búsettir hér á landi en aðrir ferðamenn. Ekki kemur fram í tilkynningunni hvert ástand þeirra er en lögregla greindi frá því fyrr í dag að slysið væri alvarlegt.Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar auk sjúkraflugvéla voru sendar austur til að sækja slasaða og flytja þá til Reykjavíkur. Rauði krossinn veitti vitnum að slysinu áfallahjálp.Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd samgönguslysa.
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd