Frá og með gærdeginum er bannað að selja og framreiða áfengi í sveitarfélaginu Kujalleq á Grænlandi. Heimastjórn Grænlands barst beiðni frá sveitarstjórn Kujalleq um að setja bannið á tímabundið. Greint er frá þessu í tilkynningu á vef heimastjórnarinnar.Þar segir að tilgangur bannsins sé að útrýma ógn við velferð barna og öryggi íbúa. Bæjarstjórnin í Kujalleq hafi lýst yfir áhyggjum vegna nýlegra banaslysa sem talin eru vera bein afleiðing áfengisdrykkju. Bannið er ótímabundið og varir þar til fyrirmæli þess verða tekin úr gildi.Kujalleq er syðsta sveitarfélagið á Grænlandi. Þar búa á sjöunda þúsund manns. Þar er meðal annars bærinn Qaqortoq sem er sá fjórði stærsti á Grænlandi og hefur um þrjú þúsund íbúa.