Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. Hann þori ekki að viðurkenna að hann hafi gert mistök.Kasyanov var forsætisráðherra Rússlands frá 2000 til 2004. Í viðtali við AFP segir hann Rússlandsforseta hafa málað sig út í horn.Pútín hafi gert þau hrapallegu mistök að trúa öryggisráði sínu um að Úkraína væri veikburða fyrir innrásina árið 2022. Hann segist því ekki viss um að stríðið taki enda á næsta ári, þrátt fyrir stígandi efnahagsvanda og óróleika meðal rússnesku þjóðarinnar.Pútín sé enn sannfærður um að hann geti haldið út gegn Úkraínumönnum og megi ekki sýna veikleika með því að gefast upp.Rússar hvöttu diplómata og útlendinga til að yfirgefa Kyiv í dag og boðuðu miklar loftárási