Ísland og Búlgaría mættust á Laugardalsvelli í dag í þriðju umferð C-deildar Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta. Ísland vann 3-0.Ísland var fyrir leikinn á toppi riðilsins með fjögur stig eftir 3-0 útisigur á Lúxemborg og 1-1 jafntefli gegn Eistlandi.Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson gerði sex breytingar á byrjunarliði Íslands frá sigrinum í Lúxemborg á þriðjudag. Aron Einar Gunnarsson, Hörður Björgvin Magnússon, Andri Fannar Baldursson, Mikael Neville Anderson, Jón Dagur Þorsteinsson og Arnór Sigurðsson komu inn í byrjunarliðið.Úr byrjunarliðinu viku þeir Logi Tómasson vegna veikinda, Gylfi Þór Sigurðsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Stefán Teitur Þórðarson, Daníel Leó Grétarsson og Guðlaugur Victor Pálsson.Þó nokkur vindur var á Laugardalsvelli og hafði hann áhrif á sendingar sem margar vor