Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðvikudag.Pike liggur nú meðvitundarlaus á spítala eftir að tvær tilraunir til að taka hana af lífi tókust ekki. Hún fékk tvær sprautur af pentóbarbítóli sem áttu að vera banvænar. Aftöku hennar hefur verið frestað.Bill Lee, ríkisstjóri Tennessee, greindi frá afsögn Strada í dag. Hann segir fangelsismálastjórann kveðja starfið í þessum mánuði.