Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðmundsson, stjórnarformann SÍBS, sem er jafnframt faðir Fannars. SÍBS á og rekur Reykjalund.Gunna Dís tekur viðtalið og það sem viðmælandinn veit ekki er að Fannar stýrir því hvað Gunna segir. Þetta verður bæði óþægilegt og skemmtilegt.Söfnunin gekk vonum framar þar sem rúmar 111 milljónir söfnuðust til framkvæmda.