Lokað verður fyrir almennar bókanir í Hálendismiðstöðina í Kerlingarfjöllum yfir vetrarmánuðina en áfram opið fyrir hópabókanir. Rekstrarstjóri segir breytinguna vera hluta af því ferli að sjá hvað virki best fyrir staðinn sem verði mannaður í allan vetur og því starfandi allt árið um kring.