Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum

Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða um land.„Á norðanverðum Vestfjörðum hafa fallið bæði grjóthrun og skriður, mest áberandi var stór skriða sem féll á Hnífsdalsveg í gær, 2. október. Í dag, laugardag, er von á lægð yfir landið sem með fylgir úrkoma,“ segir þar.„Heildarúrkoma sem fylgir lægðinni er ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu, en þar sem jarðvegur er þegar orðinn vatnsmettaður getur lítil viðbótarúrkoma nægt til að koma af stað hreyfingum í hlíðum og aukið líkur á skriðuföllum.“Á vef Veðurstofunnar segir að athyglisverð virkni hafi verið í Gleiðarhjalla síðustu daga. Svæðið geti verið viðkvæmt í kjölfar langvarandi úrkomu.„Skriða féll í Eyrarhlíð í gær, föst
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd