Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli

Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, verkleg og bókleg á Hvolsvelli eins og gert hefur verið í þrjátíu ár.Nú þarf annað hvort að fara á Selfoss eða Höfn til að taka prófin.Verklegu og bóklegu ökuprófin hafa farið fram til fjölda ára á Hvolsvelli fyrir þá ökunemendur sem búa í Rangárvallasýslu eða Vestur-Skaftafellssýslu en nú hefur það verið aflagt. Prófað hefur verið á Hvolsvelli af starfsfólki Frumherja fyrir hönd Samgöngustofu.Guðni Ragnarsson, ökukennari, sem býr á Guðnastöðum í Landeyjum hefur vakið athygli á málinu með bréfi til sveitarstjórna. Hann er mjög óánægður með þessa breytingu.„Þetta minnkar náttúrlega þjónustuna við svæðið töluvert og verður miklu dýrara fyrir neme
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd