Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof

Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörðun sína hefur tímaritið Time skipað henni á lista yfir 100 áhrifamestu, rísandi stjörnur heims.Kawata er þrjátíu og sex ára bæjarstjóri í bænum Yawata sem er rétt sunnan við borgina Kyoto í Japan.Þegar Kawata var kjörin í embættið árið tvö þúsund tuttugu og þrjú, þá þrjátíu og þriggja ára gömul, var hún jafnframt yngsta konan til að gegna starfi bæjarstjóra í landinu.Fréttamiðillinn Japan Times greinir frá því að fyrir ákvörðun sína hafi Kawata fengið bæði hól og last í Japan þar sem hlutfall kvenna í stjórnmálum er afar lágt og kynbundin mismunun á vinnustað er þeim oft fjötur um fót. VARPAR LJÓSI Á VANDAMÁL SEM VALDA FÓLKSFÆKKUN Í umsögn
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd