Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæf sem stendur, eða hafa jafnvel horfið úr smáforritinu. Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, segir unnið að því að greina hvað valdi trufluninni og ráða úr stöðunni.