Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust eftir að Maricarmen, 87 ára gömul kona, var borin út úr húsnæði sem hún hafði leigt áratugum saman í Madríd. Leigjendasamtök Spánar segja að það hafi myndast gjá sem ekki verði brúuð milli fólksins og flokkanna á þingi.Tillögurnar sem Pedro Sánchez forsætisráðherra mælti fyrir í gær fela meðal annars í sér að leigusamningar myndu endurnýjast sjálfkrafa og sérstaka ráðstöfun til að koma í veg fyrir útburð leigjenda í viðkvæmri stöðu. Þá átti líka að banna útburð til ársins 2030 og setja reglur um tímabundna leigu og leigu á herbergjum.Flokkur aðskilnaðarsinna í Katalóníu, sem ver ríkisstjórnina vantrausti, var á móti tillögunum en með andstöðu han